Með Datera jók Orkusalan árangur Google auglýsinga á sama tíma og kostnaður lækkaði

100% aukning án aukins kostnaðar

1. INNSÆI

Offjárfesting án ávinnings

Samhliða endurmörkun Orkusölunnar gerði Datera allsherjar úttekt á stafrænum eignum Orkusölunnar og uppsetningu þeirra.

Ítarleg skoðun var gerð á vef og öðrum stafrænum miðlum Orkusölunnar og staða fyrirtækisins borin saman við helstu samkeppnisaðila. Greiningarvinnan skilaði mikilvægu innsæi sem leiddi m.a. í ljós offjárfestingu í keyptum niðurstöðum á Google leit sem hafði skilað afar takmörkuðum árangri þegar upp var staðið.

Vikuleg tölfræði sem sýnir kostnað á hvern smell (e. Cost Per Click)
Dæmi um hvernig CPC var að þróast í ranga átt

2. NÁLGUN

Greining á hegðun

Endurskipuleggja þurfti stafræna markaðssetningu Orkusölunnar í heild sinni og auka skilvirkni með nýrri forgangsröðun.

Strax í upphafi var hægt að draga úr óþarfa kostnaði með nokkrum einföldum aðgerðum. Datera hófst síðan handa við að endurstilla herferðir (e. restructuring campaign) og stýra birtingafé á mun markvissari hátt en áður á ný leitarorð sem höfðu verið skilgreind sem verðmæt. Samhliða lyftu aðgerðir Datera gæðaeinkunn Orkusölunnar hjá Google (e. Google Quality Score) sem skilaði sér í lægra verði á hvern smell.

3. ÁRANGUR

Umferð tvöfaldaðist og kostnaður lækkaði

Aðgerðir Datera urðu til þess að umferð tvöfaldaðist frá keyptri leit fyrir sama kostnað. Með endurstillingu fór hlutfall þeirra sem smelltu á keyptar birtingar frá Orkusölunni (e. Click Through Rate) úr 7% í rúm 15%.

Aukning í smellum eftir aðgerðir Datera
Á sama tíma lækkaði kostnaður pr. smell um 45%

Vikuleg tölfræði sem sýnir kostnað fyrir hvern smell (e. Cost Per Click)
Dæmi um hvernig aðgerðir Datera drógu CPC niður